Afhending – Þær vörur sem þú pantar á vefnum sendum við til þín á næsta pósthús eða heim að dyrum með Íslandspósti eða öðrum þeim aðila sem hentugast er hverju sinni. Einnig er hægt að sækja vörurnar í verslun okkar á Austurvegi 11, á Selfossi. Vinsamlegast tilgreinið ef pakka á vörunni inn.
Sendingarkostnaður: Smávægilegur sendingarkostnaður bætist við vörur í flestum tilfellum. ATH: við sendum frítt innanlands ef pöntunin fer yfir 15 þúsund krónur.
Verð og verðbreytingar: Allt verð á síðunni er með vsk og gildir það verð sem þar er að finna. Allt verð er þó birt með fyrirvara um myndabrengl eða prentvillur. Verð gildir þannig ekki ef um augljós mistök við verðmerkingu er að ræða.
Gallar og ábyrgð: Komi upp galli hefur kaupandi rétt til að leggja fram kvörtun og krafist úrbóta svo sem nýrrar afhendingar vöru, afsláttar eða riftunar. Takist ekki að lagfæra gallaða vöru mun Karl úrsmiður afhenda kaupanda sambærilega vöru sé þess kostur eða endurgreiða. Ábyrgð á vöru er að jafnaði tvö ár. Ábyrgð Karls úrsmiðs nær ekki til:
1. Bilana og áverka vegna vanrækslu og illrar meðferðar – 2. Bilana vegna raka og móðu, sé t.d. úrið ekki vatnsþétt (5ATM). Telji kaupandi að um galla sé að ræða er hægt að hafa samband með netpósti kalliur@kalliur.is eða í síma 482-1433 á opnunartíma verslunar.
Skilaréttur
Hægt er að skipta vörum hjá okkur innan 90 daga frá því að varan er keypt. Þú hefur rétt til að falla frá þessum samningi án þess að tilgreina nokkra ástæðu innan 14 daga sé vara keypt í netverslun sbr. ákvæði laga nr. 16/2016 um neytendasamninga. Frestur til að falla frá samningnum rennur út 14 dögum eftir þann dag sem þú eða annar einstaklingur sem þú tilgreindir, annar en flutningsaðilinn, hefur fengið vöruna í sína vörslu.
Til þess að nýta réttinn til að falla frá samningnum þarft þú að tilkynna okkur, Karl R. Guðmundssn ehf. sími 482 1433, Eyravegi 38, 800 Selfossi, kalliur@kalliur.is um
ákvörðun þína um að falla frá samningnum með ótvíræðri yfirlýsingu (t.d. með bréfi sendu í pósti, símbréfi eða tölvupósti). Sjá bréf
Til að fresturinn teljist virtur nægir þér að senda tilkynningu um að þú neytir réttar þíns til að falla frá samningi áður en fresturinn rennur út.
Áhrif þess að falla frá samningi: Ef þú fellur frá þessum samningi munum við endurgreiða þér allar greiðslur sem við höfum fengið frá þér, þ.m.t. afhendingarkostnað (að undanskildum viðbótarkostnaði vegna þess að þú valdir annan afhendingarmáta en ódýrasta staðlaða afhendingarmáta sem við bjóðum). Endurgreiðsla fer fram án ástæðulausrar tafar og alla jafna ekki síðar en 14 dögum eftir að okkur berst tilkynning um um að þú fallir frá þessum samningi. Við munum endurgreiða þér með því að nota sama greiðslumiðil og þú notaðir í upphaflegu viðskiptunum, nema þú hafir samþykkt annað sérstaklega. Þú þarft ekki að bera neinn kostnað af þessari endurgreiðslu. Við getum beðið með endurgreiðslu þar til við höfum fengið vöruna aftur eða þú hefur lagt fram sönnun fyrir endursendingu hennar, hvort sem kemur á undan.
Þú þarft að endursenda vöruna eða afhenda vöruna til okkar án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir daginn sem þú tilkynnir okkur ákvörðun þína um að
falla frá samningnum. Fresturinn telst virtur ef þú endursendir vöruna fyrir lok 14 daga tímabilsins. Við munum bera kostnað af endursendingu vörunnar. Þú ert aðeins
ábyrg(ur) fyrir rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar af meðferð hennar annarri en þeirri sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar.
Þegar um endurgreiðslu er að ræða er vara eða þjónusta endurgreidd á sama greiðslumáta og upphaflega var notast við.
Engra persónuupplýsinga er aflað umfram það sem viðskiptavinur gefur vegna viðskipta. Þeim upplýsingum er á engan hátt miðlað áfram. Upplýsingar um viðskiptavin, svo sem nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang eru fengnar í þeim tilgangi að tryggja að vörur séu sendar á réttan aðila og gefa okkur kost á að vera í samskiptum við viðskiptamann.
Engar kortaupplýsingar eru vistaðar á vefþjónum eða vefsvæðum okkar. Skuldfærslur fara fram á greiðslugátt þriðja aðila sem sendir okkur staðfestingu á að hún hafi tekist.
Komi upp ágreiningur milli kaupanda og seljanda geta aðilar skotið slíku máli til Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa, Borgartúni 29, 105 Reykjvík en sjá má frekari upplýsingar um nefndina hér: www.kvth.is. Rísi réttarágreiningur í tengslum við skilmála þessa skal bera hann undir Héraðsdóm Reykjavíkur. Hægt er að senda kvartanir er varðar persónuvernd netfangið postur@personuvernd.is
Karl R. Guðmundsson ehf. kt: 610396-2839 – vsk. nr. 50074, er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga. Netfang er kalliur@kalliur.is
