KRAFTUR GRANDE BRACELET SILVER

23.800 kr.

„LÍFIÐ ER NÚNA„ vandað og veglegt leðuramband, hannað fyrir Kraft félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein.

Boðskapurinn „LÍFIÐ ER NÚNA„ á við alla á öllum stundum lífsins.

Armbandið kemur í tveimur lengdum 18 – 22cm og 20 -24cm. Armbandið er úr mjúku kálfaskinni og áletruðu sterling silfri. Svart kálfaskinn með mildum orange, einkennislit Krafts að innan og áletruðu rhodium húðuðu silfri. Hægt er að nota armbandið á marga vegu.

Allar vörur eru framleiddar úr 925 sterling silfri.

KRAFTUR er félag sem styður ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra.
VERA DESIGN og KRAFTUR tóku höndum saman um að vekja athygli á mikilvægi þess að njóta líðandi stundar
og hannaði VERA DESIGN þessa fallegu línu fyrir KRAFT og rennur allur ágóði af sölu á línunni „LÍFIÐ ER NÚNA“ til KRAFTS
LÍFIÐ ER NÚNA……. einmitt á þessari stundu, og við eigum að lifa því til fulls alltaf.
Einstakur skartgripur með kraftmiklum boðskap.
LÍFIÐ ER NÚNA
❤️
Lengd á armbandi

,

Shopping Cart
Scroll to Top